Starfsfólk í söluskálanum Freysnesi í Skaftafelli hringdi í neyðarlínuna í gær og tilkynnti um þjófnað eftir að ferðamenn létu greipar sópa í söluskálanum og fylltu vasana af matvöru, sælgæti og minjagripum. Sú tilkynning skilaði sér þó ekki til lögreglunnar á Suðurlandi.