Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Útlit fyrir gott færi á skíðasvæðum landsins um páskana

Dymbilvika er runnin upp og margir hafa það að venju að skella sér á skíði um páskana.„Spáin er bara eins og hún er og við tökum þetta bara dag frá degi. En þetta verða geggjaðir páskar,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum.Hann segir nægan snjó í brekkunum og því þurfi fólk ekki að óttast að Bláfjöll verði lokuð vegna snjóleysis.„Hann kom aðeins of seint en það er allt komið á kaf hjá okkur líka,“ segir Einar. „Ef að veðrið helst skikkanlegt og við fáum ekki endalausar rigningar, þá verður snjór hérna fram í maí. En það kemur enginn á skíði eftir apríl. Þá eru allir dottnir í reiðhjólin og golfið.“ NÁNAST OF MIKIÐ AF SNJÓ Í ODDSKARÐI Á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri stefnir einnig í góða skíðapáska og skemmtiatriði verða flesta dagana í brekkunni. Brynjar Helgi Á
Útlit fyrir gott færi á skíðasvæðum landsins um páskana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta