Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Jakob hættur sem aðstoðarmaður

Jakob Birgisson er hættur sem aðstoðarmaður Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Frá þessu greinir hann á Facebook.„Það hefur líklega ekki farið fram hjá mínum nánustu að undanförnu að grínið, uppistandið og ýmsar hliðargreinar þess hafa togað í mig. Þetta hefur ágerst þannig undir það síðasta að ég get ekki hunsað það lengur og bind því nú enda á ársleyfi mitt frá kölluninni,“ skrifar Jakob.Þórdís Valsdóttir, upplýsingafulltrúi í ráðuneytinu, tekur við stöðu aðstoðarmanns. Fyrir er Þórólfur Heiðar Þorsteinsson til aðstoðar.Jakob Birgisson var þekktur grínisti áður en hann varð aðstoðarmaður ráðherra. Hann ætlar að snúa aftur í grínið.Kynningarmynd / Úr einkasafni
Jakob hættur sem aðstoðarmaður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta