Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fá fjórar milljónir til að mæta skertri þjónustu Strætós í Reykjanesbæ

Fjögur verkefni sem eiga að bæta almenningssamgöngur milli byggða fá 25 milljónir króna í verkefnastyrki. Alls bárust átta umsóknir sem hljóðuðu samtals upp á 74 milljónir.Eitt verkefnið sem fær styrk er viðbragð við því að dregið var úr þjónustu landsbyggðarstrætisvagna við Reykjanesbæ. Stoppistöðvum á leiðinni í gegnum Reykjanesbæ frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur var fækkað úr átta í tvær. Þar á meðal voru felldar niður ferðir inn í Ásbrú. Margir íbúar þar höfðu treyst á strætó til að komast í nám og til vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta olli mikilli óánægju íbúa og bæjaryfirvalda.Reykjanesbær fær fjórar milljónir króna til að mæta kostnaði við að tengja leiðakerfi innanbæjarstrætisvagna við landsbyggðarstrætisvagna. Bæta þurfti tveimur morgunferðum við núverandi leiðakerfi til að
Fá fjórar milljónir til að mæta skertri þjónustu Strætós í Reykjanesbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta