Miðflokkurinn í Kópavogi er búinn að ákveða framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Stjórn flokksins í Suðvesturkjördæmi hefur samþykkt tillögu uppstillingarnefndar í bænum.Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður flokksins, er oddviti framboðslistans. Næstu sæti skipa Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari, og Beitir Ólafsson byggingaverktaki.Miðflokkurinn bauð fram í Kópavogi í síðustu kosningum en náði ekki inn í bæjarstjórn.