Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Suðvestanátt með dálitlum skúrum eða éljum

Hiti verður um eða yfir frostmarki víðast hvar á landinu í dag. Grunn lægð er á Grænlandssundi sem veldur því að suðvestanátt verður á landinu í dag, frá fimm að þrettán metrum að sekúndu. Víðast má búast við dálitlum skúrum eða éljum en austanlands verður yfirleitt þurrt og bjart.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Suðvestan og vestan 5-13 m/s og dálitlar skúrir eða él, en að mestu bjart og þurrt austanlands. Snýst í austan- og suðaustanátt seint í kvöld með snjókomu eða slyddu.Vestan 8-13 m/s, en 13-18 austanlands. Él, en snjókoma norðaustantil fram eftir degi, en léttir til þar annað kvöld. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum.
Suðvestanátt með dálitlum skúrum eða éljum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta