Maður sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði fannst og var skotinn til bana af lögreglu í Viktoríu-fylki í Ástralíu í gær. Maðurinn, Dezi Freeman, var eftirlýstur fyrir morð á tveimur lögreglumönnum.Lögreglumennirnir tveir voru við húsleit á heimili mannsins í Porepunkah í ágúst þegar Dezi skaut þá báða til bana. Þá særðist einn lögreglumaður í árásinni. Dezi náði að flýja af vettvangi og inn í þjóðgarð þar sem mikið er af námugöngum sem ekki eru lengur í notkun. Lögreglan lýsti eftir honum og bauð eina milljón ástralskra dollara, eða rúmlega 86 milljónir íslenskra króna, fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku hans.Síðan hafa hundruð lögreglumanna leitað Dezi vítt og breitt um þétt kjarrlendi Viktoríufylkis. Hann fannst að lokum í hjólhýsi sínu í Tholongolong sem er á afskekktum s