Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu

Rússneskt olíuskip er á leið til Kúbu og ætti að öllu óbreyttu að koma til hafnar á mánudagskvöld að staðartíma. Um 730.000 þúsund tunnur af olíu eru um borð í skipinu.Fréttamiðillinn The New York Times greinir frá því að Landhelgisgæsla Bandaríkjanna muni ekki stöðva skipið og því verði leyft að sigla til Kúbu. Ekki liggur fyrir af hverju Bandaríkjastjórn hefur ekki fyrirskipað að skipið verði stöðvað. Þá er ekki ljóst hvort frekari innflutningar á rússneskri olíu verði leyfðir til eyjunnar.Mikið neyðarástand hefur verið í orkumálum á eyjunni síðan í janúar vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og olíubirgðir eyjunnar eru af afar skornum skammti. Eldsneytisskortur, rafmagnsleysi, snarpar verðhækkanir og versnandi ástand í heilbrigðismálum hefur leikið því íbúa eyjunnar grátt af þessum sök
Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta