Þremur listaverkum eftir heimsþekkta listamálara var stolið frá ítalska listasafninu Magnani Rocca-safninu, nærri borginni Parma, í síðustu viku. Verkin þrjú eru Fiskur eftir Auguste Renoir, Kyrralífsmynd með kirsuberjum eftir Paul Cezanne og Ambátt á stéttinni eftir Henri Matisse.Verkin eru metin á níu milljónir evra samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC um ránið. Það jafngildir tæpum 1,3 milljörðum íslenskra króna. Þar af er verk Auguste Renoir Fiskur eitt og sér metið á 6 milljónir evra eða um 860 milljónir íslenskra króna. Renoir var einn helsti impressjónistamálarinn og Fiskinn málaði hann árið 1917. Verkið eftir Cezanne var málað árið 1890 og Matisse málaði sitt verk árið 1922.Svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagt en það tók þjófana fjóra innan við þrjár mínútur a