Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þriggja bíla árekstur vegna hálku á Holtavörðuheiði

Áreksturinn varð á Holtavörðuheiði vegna hálku.RÚV / Kristófer Óli BirkissonÞriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiði í kvöld. Meiðsl á fólki voru minni háttar samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra en ekki liggur fyrir hversu margir þurftu að leita sér aðhlynningar.Áreksturinn varð með þeim hætti að einn bíll hafði farið út af veginum vegna hálku, annar var að draga hann aftur upp á veginn og þá kom bíll sem lenti í árekstri við þessa tvo bíla. Búið er að flytja fólk og bíla burtu af vettvangi.Fljúgandi hálka og mjög slæm akstursskilyrði eru á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar; umferdin.is
Þriggja bíla árekstur vegna hálku á Holtavörðuheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta