Veðurfar næstu daga verður öllu rólegra en landinn hefur mátt venjast undanfarnar vikur, og búast má við tilbrigðalitlu veðurfari í dymbilvikunni á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Lægð nálgast landið, en sú mun að öllum líkindum ekki hafa í för með sér óveður.