Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kokkur ársins ætlar landsliðinu stóra hluti á heimsmeistaramótinu

Ísak Aron Jóhannsson fangaði titilinn kokkur ársins í kvöld. Var þetta í þrítugasta sinn sem keppnin er haldin en fimm öttu kappi um titilinn eftirsótta.En hvað skilaði Ísaki sigrinum?„Metnaður, fagmennska og að smakka matinn. Það er það í grunninn. Vinna hreint, smakka matinn. Hafa gaman af þessu,“ sagði Ísak í viðtali við fréttastofu í kvöld, nýkominn með bikarinn í hendurnar.Ísak Aron er jafnframt fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Heimsmeistaramótið í matreiðslu er fram undan.„Þar ætlum við að gera stóra hluti. Það er gaman að segja frá því að í 2. sæti var Hugi Rafn og í 3. sæti var Viktor Pálsson, tveir frábærir einstaklingar og miklir vinir mínir, og þeir eru með mér í landsliðinu. Við ætlum að gera stóra hluti í nóvember í Lúxemborg.Metnaður, fagmennska og að smakka matinn vel e
Kokkur ársins ætlar landsliðinu stóra hluti á heimsmeistaramótinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta