Nú styttist í páskana og hver fer að verða síðastur að næla sér í páskaegg.Eggin hafa hækkað mismikið í verði hjá framleiðendum á milli ára. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís, samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ.Hætt er við að valkvíði geti hamlað einhverjum við val á páskaeggjum í ár. Alls voru 53 páskaegg í sölu í vefverslun Krónunnar, og í verslunum Hagkaupa. 41 tegund var í sölu í Prís þegar könnunin var gerð.Páskaegg af öllum stærðum og gerðum fylla nú hillur verslana. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Verð á páskaeggjum sem merkt eru Bónus hækka mest milli ára. LÆKKA VERÐ Í SAMRÆMI VIÐ LÆGSTU VERÐ ANNARS STAÐAR Rakel Másdóttir, verðstýringar- og verkefnastjóri hjá Prís, segir verslunina leggja upp úr góðum samningum við birgja og fylgjast vel með