Utanríkisráðherrar fjögurra ríkja komu saman í Pakistan í dag til að ræða mögulegar friðarumleitanir í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Fundur ríkjanna fjögurra fór fram í Islamabad, höfuðborg Pakistans. Þar hittust utanríkisráðherrar Pakistans, Sádí-Arabíu, Egyptalands og Tyrklands og ræddu leiðir til að minnka spennu í stríðinu í Mið-Austurlöndum.Stjórnvöld í Pakistan reyna að miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans. Pakistanskur sérfræðingur segir árangurinn velta á friðarvilja ríkjanna sem eigi í stríði – sem í þessu tilfelli sé enginn.„Ekki aðeins þeir sem eiga pólitískra hagsmuna að gæta, heldur einnig hermálayfirvöld þessara landa, hafa ekki vilja til að koma á friði,“ segir Khalida Goups, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum.Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjamönnum öllu illu ætli þeir að h