Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, barn og fullorðinn, við söluskála Olís í Varmahlíð í dag. Báðir einstaklingar hafa verið fluttir flugleiðis á Landspítalann.Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi vestra en í tilkynningu lögreglu segir að ekki séu veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna slyssins. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna hafa verið kallaða út í mesta forgangi og að hún hafi tekið á loft um klukkan hálf sex í dag.Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn segir slysið alvarlegt. Lögreglunni barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan fimm í dag og viðbragðsaðilar fóru strax á vettvang. Vegurinn er ekki lokaður en