Velferðarráð Reykjavíkurborgar lýsir yfir áhyggjum í tengslum við frumvarp barna- og menntamálaráðherra um breytingar á lögum um barnavernd. Í umsögn sinni um frumvarpið ítrekar ráðið mikilvægi þess að vandað sé til verka í svo viðkvæmum málaflokki.Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, lagði fram frumvarp til laga um barnaverndar á föstudaginn. Velferðarráð Reykjavíkurborgar sendi velferðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarpið samdægurs.Ráðið segir þar ámælisvert að kafli um fósturmál hafi ekki verið nægilega vel skoðaður. Þá er ekki heldur fjallað um málefni fatlaðra og seinfærra foreldra með nægilega skýrum hætti að mati ráðsins og ákvæði um börn með fjölþættar stuðningsþarfir óskýr. UMFAGSMIKLAR BREYTINGAR SEM SNERTI VIÐKVÆMA HÓPA Í umsögninni lýsir velferðaráð áhyggjum af því að