Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna alvarlegs umferðarslyss við Varmahlíð

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna umferðarslyss við Varmahlíð. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út í mesta forgangi og hafa tekið á loft um klukkan hálf sex í dag.Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn segir slysið alvarlegt en kvaðst ekki hafa upplýsingar um hversu margir væru slasaðir. Lögreglunni hafi borist útkallið rétt fyrir klukkan fimm í dag og viðbragðsaðilar séu á vettvangi. Vegurinn sé ekki lokaður.Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna alvarlegs umferðarslyss við Varmahlíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta