„Við hörmum stöðuna sem er komin upp í skólamálunum núna. Það er mjög slæmt þegar að byggðarlag er hvorki að bjóða upp á grunn- eða leikskólaþjónustu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings.Það stefnir í að aðeins tvö börn verði á grunnskólaaldri á Raufarhöfn á næsta skólaári og þau þurfa að fara um sextíu kílómetra leið í grunnskólann í Öxarfirði. Raufarhöfn var fyrsta verkefni Brotthættra byggða á vegum Byggðastofnunar og hófst árið 2012. Ekki hefur gengið nægilega vel að snúa við byggðaþróun.„Við höfum ekki haft erindi sem erfiði í baráttunni fyrir auknum kvóta. Ríkið eða Byggðastofnun hefur komið að með verkefni sem eru tengd brothættum byggðum og slíkt verkefni er í gangi núna. En það er bara dropi í hafið og það þarf miklu miklu stærri aðgerðir til þess að snúa við