Ísland var eitt 52 ríkja sem sátu hjá þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna staðfesti með miklum meirihluta atkvæða að versti glæpur gegn mannúð sé ánauð Afríkumanna á nýlendutímanum.Fulltrúar Gana lögðu ályktun þessa efnis fyrir allsherjarþingið og hvöttu jafnframt ríki Sameinuðu þjóðanna til að biðjast afsökunar á þrælaversluninni og íhuga stofnun bótasjóðs.Þess er einnig krafist að stolnum fornminjum frá löndum Afríku verið skilað aftur. Afríkubandalagið og Karíbahafsríki studdu Gana við gerð ályktunarinnar. Engar sérstakar fjárhæðir voru nefndar í því samhengi en kröfur um bætur fyrir þrælasölu hafa orðið æ háværari á síðustu árum.Ályktunin var samþykkt með 123 atkvæðum en Bandaríkjamenn, Ísraelar og Argentínumenn sögðu nei. Fulltrúar 52 ríkja sátu hjá, auk Íslands má nefna Bretland