Matvöruverð hefur hækkað meira á fyrstu þremur mánuðum ársins en í byrjun síðasta árs. Vörukarfa verðlagseftirlits ASÍ hækkaði um 0,68% milli febrúar og mars. Mánaðarhækkunin er þvert á vöruflokka. Mestu munar um unnar kjöt- og mjólkurvörur en aðrar dýraafurðir og sælgæti hækka einnig.Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir mestu verðhækkanirnar hafa verið á erlendri vöru í nokkur ár, einkum í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Verð á erlendri vöru hafi loks tekið að hjaðna en þá hafi ný hækkanahrina tekið við, í þetta sinn innanlands.„Ef maður myndi horfa á hvað væri effektívast eða hvað það er sem hefur mest áhrif á í raun og veru verðið þá er það auðvitað innkaupsverðið og þar liggur vandinn.“ AFKOMA SÉ TILTÖLULEGA LÍTILL HLUTI AF MATVÖRUVERÐI Spurðu