Lögreglan í Noregi rannsakar fjölda mála sem talin eru tengjast hættulegum ofbeldishópi á netinu. Tilkynningum um brot sem varða ofbeldishópa hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum.Hópurinn nefnist 764 en hann er hluti af stærra neti sem kallað hefur verið The Community, eða Samfélagið. Þar eru brot tekin upp og þeim dreift á lokuðum spjallrásum. Yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu, þar með talið á Íslandi, hafa varað við hópum á borð við þennan sem ýta undir ofbeldisdýrkun og sjálfsskaða.Norski fjölmiðillinn Dagbladet segir meðal annars frá því að í einu tilfelli hafi ungur drengur verið ákærður fyrir vörslu barnakláms og alvarleg kynferðisbrot gegn börnum undir sextán ára aldri í gegnum netið.Honum var einnig gert að sök að hafa hvatt annan einstakling til að valda sjálfum sér líkamle