Fimm keppa um titilinn Kokkur ársins 2026. Keppnin fer nú fram í verslun IKEA í Garðabæ.Þetta er í þrítugasta sinn sem keppnin er haldin.Verkefni dagsins er að elda þriggja rétta matseðil, fyrir 12 manns. Forseti Klúbbs matreiðslumeistara segir keppnina einstaklega harða í ár. ÚRSLIT LIGGJA FYRIR Í KVÖLD Forkeppni fór fram á föstudag og í dag fengu keppendur það verkefni að töfra fram þrjá rétti, eftir matseðli sem þeir bjuggu til sjálfir, á fimm klukkustundum.Og það er stór hópur sem sér um að velja þá sem standa upp úr.Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, segir störf dómara vera margvísleg. Fylgst er með keppendum í allan dag.Níu dómarar sjá um að smakka matinn sem keppendurnir reiða fram.„Það er verið að dæma um eldhúsið, hvernig þú vinnur í eldhúsinu, vinnubrögð, hre