Töluverður fjöldi landsmanna ætlar að fylgjast með almyrkvanum í ágúst, samkvæmt könnun Ferðamálastofu. Örlítið færri fóru í utanlandsferðir í fyrra en árið áður, en gistinætur voru fleiri.Vinsælustu erlendu áfangastaðir Íslendinga í fyrra voru Spánn og Portúgal. Þangað fór rúmlega helmingur þeirra sem fóru út fyrir landsteinana. Næst á eftir voru Bretlandseyjar, Danmörk, Bandaríkin og Kanada, Þýskaland og Ítalía.78% landsmanna ferðuðust til útlanda, þremur prósentustigum færri en árið áður en gistinætur voru fleiri. Meðalfjöldi gistinótta erlendis var tæplega 25 og hefur aldrei áður mælst hærri. 65% sögðust ekki ætla að fækka utanlandsferðum vegna aukinnar umræðu um umhverfismál. DREIFA MEGI FERÐAMÖNNUM BETUR UM LANDIÐ Um 84% ferðuðust innanlands í fyrra. Vinsælasta afþreyingin sem fól