Hallgrími Helgasyni rithöfundi brá í brún þegar hann opnaði pappírsgám í endurvinnslustöð Sorpu í Elliðavogi. Við blöstu bækur en ekki hvaða bækur sem er. Þar var að finna Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. Fjölmörgum blöskrar að sjá slíkt stórvirki á leið í tætarann á meðan aðrir benda á að um óumflýjanleg örlög bóka sé að ræða.