Mannanafnanefnd hefur í annað sinn hafnað umsókn tónlistar- og listamannsins Curver Thoroddsen um að fá nafn sitt löglega samþykkt í mannanafnaskrá. Þetta er ekki fyrsta umsókn Curver en hann sótti fyrst um fyrir 20 árum þegar hann var þrítugur.Nafnið tók hann upp ungur og er það komið frá Curver-ruslatunnum sem lesendur muna mögulega eftir.„Allir vinir mínir og fjölskylda þekkja mig sem Curver,“ segir hann sem tekur fram að það hafi tekið stuttan tíma fyrir fólkið í kringum hann að taka nafnið í fulla notkun.„En þarna kemur ríkið inn í og segir nei, þú mátt það ekki af því að C er ekki bókstafur í íslenska stafrófinu,“ segir Curver sem kveðst þó hafa skilning á því út frá málverndarstefnu.Í úrskurði nefndarinnar segir að nafnið taki vissulega eignarfallsendingu. Meginástæða höfnunarinnar