Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Líf: „Ótrúverðugasta glæpasaga sem ég hef á ævi minni lesið“

Bókin Líf eftir Reyni Finndal Grétarsson hefst á að maður finnst látinn í bílskúr á heimili sínu og svo virðist sem hann hafi fallið fyrir eigin hendi. Við krufningu finnst örlítið frávik og í ljós kemur að þetta er aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu. Rannsóknin er í höndum rannsóknarlögreglukonunnar Guðrúnar sem er ekki öll þar sem hún er séð.„Ég er satt best að segja að jafna mig eftir þennan lestur. Þetta er ótrúverðugasta glæpasaga sem ég hef á ævi minni lesið,“ segir Ingibjörg Iða Auðunardóttir gagnrýnandi Kiljunnar um bókina.„Maður fær á tilfinninguna að Guðrún eigi að vera einhvers konar blanda af Lisbeth Salander og Herði Grímssyni en þetta er algerlega misheppnað, því miður. Ég óska þessum rithöfundi alls hins besta en þetta er ekki góð glæpasaga og ég á mjög erfitt með að tí
Líf: „Ótrúverðugasta glæpasaga sem ég hef á ævi minni lesið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta