Björgunarsveitir sinntu fjölmörgum útköllum vegna foktjóns og ferðalanga sem sátu fastir í illviðrinu sem gekk yfir landið í nótt. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir álag undanfarinna vikna ekki vera meira en gengur og gerist.Gular viðvaranir tóku gildi síðdegis vegna suðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðausturlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á Vestfjörðum.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir á Patreksfirði og á Rauðasandi meðal annars hafa verið kallaðar út.Þá sátu rúta og bíll föst eftir að lítið snjóflóð féll í Raknadal og lokaði veginum. Ferðalöngum var komið í öruggt skjól og lauk aðgerðum á þriðja tímanum í nótt. Jón Þór segir aðstæður hafa verið rólegri á höfuðborgarsvæðinu.„Veðrið á höfuðborgarsv