Forseti þings Írans sakar Bandaríkjamenn um að vera að skipuleggja landhernað þar, þrátt fyrir að segjast vera í viðræðum um frið. Hann segir Írana bíða komu bandarískra hermanna á íranska grundu og hótar að þeim verði mætt með sprengjuregni.Ummælin lét hann falla eftir frétt Washington Post um að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna væri að búa sig undir nokkurra vikna landhernað gegn Íran. Samkvæmt fjölmiðlinum er þó enn óljóst hvort Trump Bandaríkjaforseti hafi samþykkt slíkt. Talið er að um 4.000 bandarískir hermenn séu á herskipum á leið til Persaflóa.Þingforseti Írans, Mohammad-Bagher Ghalibaf.EPA / WAEL HAMZEH