Tólf tonnum af Kitkat-súkkulaði, eða rúmum 400.000 súkkulaðistykkjum, var stolið þegar verið var að flytja þau frá verksmiðju á Ítalíu til dreifingarstöðvar í Póllandi á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Nestlé sem framleiðir súkkulaðið.Í yfirlýsingunni segir að bæði flutningabílsins og farmsins hafi verið saknað síðan í síðustu viku. Farminum átti að dreifa um alla Evrópu. Nestlé telur að súkkulaðið verði selt á svartamarkaði.Um 400.000 súkkulaðistykkjum var stolið á dögunum.EPA / NEIL HALL