Ein mesta olíuútflutningshöfn Rússlands er skemmd eftir drónaárásir í nótt. Aukinn þungi er í árásum Úkraínuhers á innviði í Rússlandi.Úkraínuher gerði í nótt drónaárás á höfnina Ust-Luga í Rússlandi, nálægt landamærunum að Eistlandi. Höfnin, sem er við Finnlandsflóa, er ein sú mikilvægasta fyrir útflutning Rússa á olíu, kolum og áburði. Þetta var önnur árásin á höfnina á innan við viku. Héraðsstjóri Norður-Leníngrad segir í færslu á samfélagsmiðlum að höfnin sé skemmd en að ekkert manntjón hafi orðið. Mikinn svartan reyk lagði frá höfninni í morgun.Aukinn þungi er í árásum Úkraínu á innviði í Rússlandi, svo sem á olíuhreinsistöðvar, olíubirgðastöðvar og hafnir. Úkraínsk stjórnvöld segja tilgang árásanna að minnka tekjur Rússa þannig að það komi niður á getu þeirra til að fjármagna hernað