Lögreglan handtók brjálaðan mann á Laugarvegi í gærkvöldi sem reyndist vera eftirlýstur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir manninn hafa verið í annarlegu ástandi og látið öllum illum látum er lögreglu bar að garði.Við handtöku hafi komið í ljós að hann væri eftirlýstur þar sem ekki hafði tekist að hafa uppi á honum til að birta honum fyrirkall dómstóla í öðru máli. Aðspurður kveðst Heimir ekki þekkja eðli þess máls. Hann segir manninn enn í haldi lögreglu sem kanni nú einnig landvistarleyfi mannsins, þar sem grunur sé uppi um að hann dvelji hér ólöglega.Þá upprætti lögregla einnig kannabisframleiðslu í vöruhúsnæði í hverfi 104. Heimir segir engan hafa verið á staðnum og enginn handtekinn í tengslum við málið. Hann s