Samkvæmt núverandi reglugerð er dreifiveitum á raforku heimilt að rukka eftir bæði dreifbýlis- og þéttbýlisgjaldskrá. Munurinn á þessum verðskrám er oft hátt í 40%, þar sem hallar á dreifbýlið. Þetta hefur haft í för með sér að dýrara er að byggja upp fyrirtæki sem ekki eru innan þéttbýlis.Fyrirtæki hafa kvartað undan þessu sem og samtök sveitarfélaga, þá sérstaklega Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS).Þau hafa m.a. bent á að raunverulegur kostnaður við að dreifa orku til þessara fyrirtækja sé ekki endilega hærri en í þéttbýli. Páll Ólafsson, garðyrkjubóndi á Hveravöllum, sagði í viðtali við RÚV í apríl að flutningskostnaðurinn á rafmagninu væri orðinn ríflega 55% af heildarverðinu við að nota rafmagn.Byggðarráð Skagafjarðar hefur lýst yfir ánægju með breytinguna en hefði kosið að