Engar veðurviðvaranir eru í gildi á landinu í dag, en í gær voru gular viðvaranir víða í gildi um slæma færð. Mörgum leiðum var lokað vegna þessa, meðal annars um Hellisheiði og Þrengsli á Suðurlandi og Bröttubrekku á Vesturlandi en búið er að opna vegina. Enn er lokað um Holtavörðuheiði en unnið er að mokstri.Vegir um Fjarðarheiði og Fagradal á Austurlandi eru lokaðir en verða opnaðir með morgninum. Flestir fjallavegir á Vestfjörðum eru lokaðir og er ekki stefnt á mokstur á Dynjandisheiði í dag. LÆGÐ YFIR GRÆNLANDSSUNDI OG AUSTUR AF LANDINU Búast má við vestan og suðvestan kalda eða stinningskalda á sunnanverðu landinu með skúrum eða slydduéljum í dag, vegna lægðar yfir Grænlandssundi og austur af landinu.Norðan- og austanlands verður norðaustan 8-15 m/s með snjókomu en hægari vindur i