Fyrsta íbúðarhúsið smíðað algjörlega úr íslensku timbri rís brátt í Fljótsdal og burðarviðirnir eru úr skógi sem var felldur í Öskjuhlíð í Reykjavík. Flokka þarf timbrið vandlega og velja sterkustu spýturnar svo húsið endist vel og lengi.Í Skógarafurðum í Fljótsdal er verið að saga niður sitkagrenið fræga sem fékkst við trjáfellingar í Öskjuhlíð í fyrrasumar. Það er alltaf spennandi að kíkja inn í bolina því þá kemur í ljós hversu verðmætar spýtur fást úr trénu. Timbrið er flokkað nákvæmlega því ekki geta allar spýtur borið uppi heilt hús. HORFA EFTIR KVISTUM, SPRUNGUM OG TREFJASKEKKJU ,,Við erum ekki að horfa í útlitsgalla eða ljótar spýtur. Þær geta alveg verið flottar burðarspýtur. Þannig að núna erum við bara að sjá hvort spýtan hafi burð í það sem hún á að gera. Þá horfum við bara