Margar áhafnir hafa verið um borð í skipum sínum frá því að stríðið braust út í Mið-Austurlöndum 28. febrúar. Að minnsta kosti 8 sjómenn eða hafnarverkamenn hafa farist eða verið drepnir í árásum síðan stríðið hófst.Samkvæmt Alþjóðasambandi flutningaverkamanna, ITF, hafa samtökunum borist yfir 1000 tölvupóstar og skilaboð frá félagsmönnum og áhafnarmeðlimum sem eru fastir um borð í skipum við Hormússund eða í nágrenni.Sumir voru að spyrjast fyrir um vinnuréttindi sín á stríðstímum og á stríðssvæðum og aðrir sendu myndbandsupptökur af árásum nærri skipum sínum og óskuðu eftir aðstoð við að komast frá borði því þeir væru í hættu.Þá bárust einnig skilaboð þar sem fram kom að matur og drykkjarvatn væri af skornum skammti og ekki væri hægt að sinna grunnþörfum áhafnarmeðlima. Einhverjum skipsáh