Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Til skoðunar að endurvekja aðgangseyri en aðeins fyrir erlenda gesti

Breskir ráðamenn hafa til skoðunar að rukka erlenda ferðamenn um aðgangseyri á opinberum söfnum á Englandi. Ókeypis hefur verið inn á söfnin frá 2001. Hugmyndin er viðbragð við skýrslu breska listráðsins frá því í desember þar sem lagðar voru til ýmsar nýjar fjármögnunarleiðir. Ráðið fjármagnar menningarstofnanir með fé sem það fær frá hinu opinbera og breska lottóinu.Ráðamenn segja þetta geta styrkt fjárhag safnanna til framtíðar. Þetta geti líka tryggt armslengdarsjónarmið því listráðið hættir að vera háð fjármagni frá hinu opinbera. 40-50% GESTA KOMA ERLENDIS FRÁ Efasemdaraddir heyrast þó úr menningargeiranum. Alison Cole, stjórnandi hugveitu um menningarmál, segir hugmyndina afleita. Í samtali við Guardian segir hún sérstakt gistinátta- eða ferðamannagjald betur til þess fallið að n
Til skoðunar að endurvekja aðgangseyri en aðeins fyrir erlenda gesti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta