Stríðsátökin í Mið-Austurlöndum hafa áhrif langt úr fyrir þann heimshluta. Keramikframleiðendur á Indlandi hafa neyðst til að stöðva framleiðslu í verksmiðjum sínum í borginni Morbi í Gurjat-héraði vegna orkukrísunnar sem komin er upp vegna stríðsátakanna.Keramikverksmiðjur í borginni framleiða 90% allra gólf- og veggflísa á Indlandi og eru einn stærsti framleiðandi heims á þessu sviði. Keramikframleiðsla þróaðist í Gurjat-héraði vegna þess hversu mikinn leir er þar að finna og aðstaða er góð til útflutnings enda borgin stutt frá hafi.Hátt í milljón manns starfa við keramíkframleiðslu í Morbi eða í tengdum störfum. Framleiðslan hefur legið niðri í þrjár vikur, því ekki er hægt að kynda keramíkofnana þar sem skortur er á fljótandi jarðolíugasi. Indverjar flytja inn 60% af gasinu sem þeir þu