Uppreisnarher Húta í Jemen gerði tvær eldflaugaárásir á Ísrael í nótt og þeir hóta frekari árásum. Óttast er að stríðið í Mið-Austurlöndum eigi eftir að breiðast út en fjölmiðillinn The Washington Post segir að Pentagon, bandaríska varnarmálaráðuneytið, sé að undirbúa landhernað gegn Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti eigi þó enn eftir að samþykkja aukningu herafla til Mið-Austurlanda.Afskipti Húta eru talin auka enn á óstöðugleika í þessum heimshluta. Á meðan Ísraelar gerðu árásir á Palestínu á tímabilinu nóvember 2023-janúar 2025, réðust Hútar á um 100 skip í Rauðahafinu og Adenflóa, samkvæmt umfjöllun tímaritsins Time um Húta. Með árásunum vildu Hútar sýna stuðning sinn við málstað Palestínu. Fjölmörg skipaflutningafyrirtæki neyddust til að sigla lengri og kostnaðarsamari siglingaleið