Talið er að um átta milljónir manna hafi tekið þátt í mótmælum víða í Bandaríkjunum í gær gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta undir merkjum No Kings eða Engir konungar. Alls voru um 3.300 viðburður skipulagðir vítt og breitt um 50 ríki Bandaríkjanna.Mótmælendur hafa einkum gagnrýnt Trump fyrir einræðistilburði, harðar aðgerðir gegn innflytjendum og árásir Bandaríkjanna á Íran. Er þetta í þriðja sinn sem boðað er til mótmæla Engra konunga síðan Trump var skipaður forseti í annað sinn í janúar 2025.Fyrstu skipulögðu mótmæli hreyfingarinnar voru í júní á 79 ára afmæli forsetans. Síðari mótmælagangan var í október og talið er að um sjö milljónir manns hafi tekið þátt í mótmælunum þá. Bandaríkjaforseti ver helginni á Flórída. Hann hefur ekki enn tjáð sig um mótmælagönguna, hvorki á samskiptamið