Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skipar efsta sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs og óháðra í Múlaþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.Í öðru sæti listans er Helgi Hlynur Ásgrímsson, sitjandi oddviti flokksins. Í þriðja sæti er Glúmur Björnsson og í því fjórða Guðrún Ásta Tryggvadóttir.Listinn var staðfestur á félagsfundi flokksins á miðvikudag. Flokkurinn hlaut 16,8% atkvæða í sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og tvo kjörna fulltrúa.