Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blindir og sjónskertir heimsóttu Veiðisafnið á Stokkseyri

Ísbjörn, gíraffi, sebrahestur og ljón voru meðal uppstoppaðra dýra, sem blindir og sjónskertir félagsmenn Blindrafélags Íslands fengu að snerta og þreifa á þegar Veiðisafnið á Stokkeyri var heimsótt. Mikil ánægja var með heimsóknina.Páll Reynisson, sem hefur verið með safnið í tuttugu og tvö ár sýndi safnið og leyfði öllum að þreifa og snerta eins og þeir vildu. Hann hefur meira og minna veitt öll dýrin á safninu og fengið svo færa uppstoppara til að stoppa þau upp.„Upplifunin er svo mikil því þau fá að þreifa. Þó að ég segi sjálfur frá þá er þetta náttúrulega einstakt safn. Það er eins og einn góður maður sagði þegar hann var að kveðja okkur hérna um árið, „Já, þetta er til á Íslandi og já, það á Stokkseyri”. En grínlaust, þá er þetta væntanlega eitt stærsta safn af uppstoppuðum dýrum á l
Blindir og sjónskertir heimsóttu Veiðisafnið á Stokkseyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta