Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rúm 28% kvenna í Evrópu beittar ofbeldi – Samfélagið þarf að breytast og gerendur að sæta ábyrgð

28,4 prósent kvenna og stúlkna í Evrópu eru beittar líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta kemur fram í samantekt Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vakin var athygli á í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrr í mánuðinum. Þar er rætt við sérfræðinga sem telja að hlutfallið sé enn hærra.Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir tölurnar ekki koma á óvart. Stöðugur straumur þolenda ofbeldis sé í Bjarkarhlíð og að heimilið sé enn hættulegasti staðurinn fyrir konuna. Þá sýni tilkynningar til lögreglu að ofbeldi sé útbreitt. Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu í fyrra hafi verið um þúsund, eða tæplega þrjú á dag. Hún segir ekki til nákvæma tölfræði um ofbeldi hér á landi en telur að staðan sé svipuð og í öðrum ríkjum Evrópu.T
Rúm 28% kvenna í Evrópu beittar ofbeldi – Samfélagið þarf að breytast og gerendur að sæta ábyrgð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta