Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfir ein milljón manna á flótta í Líbanon

Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon síðan í byrjun mánaðar og ein milljón manna hefur lagt á flótta. Öll skýli eru full og fólk býr víða á götunni eða hefst við í bílum sínum, jafnvel fjölskyldur með börn.Ísraelsher hefur drepið yfir þúsund manns og sært yfir þrjú þúsund. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum er hvergi í Líbanon öruggan stað að finna. Fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, Karolina Lindholm Billing, segir að staðan sé grafalvarleg og að hætta á hamförum sé mikil. Ísraelar hafi nýlega gert árásir á þéttbýl hverfi í höfuðborginni Beirút þar sem fólk hafi leitað skjóls. Þá hafa þeir skipað fólki að rýma suðurhluta landsins. Líbanir óttast að Ísraelar ætli að taka stjórnina á landshlutanum til framtíðar og að fólk geti aldrei snúið aftur heim til sín. ÍSRAE
Yfir ein milljón manna á flótta í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta