Lögreglan réðst inn á tvö heimili í Reykjavík í gær og handtók son og móður Quang Le.Quang Le var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum í mars 2024, vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Quang Le, sakar lögregluna um að mismuna fólki eftir uppruna og ætlar að kæra aðgerðirnar. SEGIR AÐGERÐIR LÖGREGLU ÚR HÓFI Sveinn Andri segir lögreglumenn hafi ráðist inn á bæði heimili, snemma morguns í gær brotið upp hurðir og öskrað á heimilisfólk.„Út af kaupsamningi um fasteign sem þau grunar að sé andlag peningaþvættis,“ segir Sveinn Andri.Sveinn Andri er ekki lögmaður þeirra sem voru handtekin en hann segir að kaupsamningurinn sé milli drengsins og ömmu hans. Hann telur að eðlilegra hefði verið ef lögre