Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fundu mann sem var leitað eftir að snjóflóð féll í Ólafsfirði

Snjóflóð féll í Ólafsfirði fyrir skemmstu. Einn lenti í flóðinu og var leitað í fyrstu en hann er nú kominn í leitirnar heill á húfi. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Flóðið féll utan byggða í Skeggjabrekkudal nálægt golfsvæðinu. Ofanflóðasérfræðingur Veðurstofunnar telur ekki hættu á frekari snjóflóðum. Hún segir flóðið ekki hafa fallið vegna veðurs heldur hafi vélsleði sett það af stað.Þetta staðfestir Hermann Karlsson aðgerðastjóri. Hann segir hóp sleðamanna sem voru í brekkunni hafa tilkynnt um snjóflóðið og að einn úr hópnum væri týndur. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðasvæðinu og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út í hæsta forgangi en maðurinn skilaði sér í leitirnar áður en viðbragðsaðilar náðu á vettvang. „Það var engin
Fundu mann sem var leitað eftir að snjóflóð féll í Ólafsfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta