Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna

Snjóflóð sem féll í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði í dag hafnaði nærri á hópi vélsleðamanna sem þar voru. Einn úr hópnum lenti í flóðinu en komst fljótlega undan því og slapp ómeiddur frá.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um snjóflóðið klukkan 15:31 í dag.Þá var viðbúnaðarstig fyrir snjóflóð virkjað á Tröllaskaga ásamt aðgerðastjórn á Akureyri. Stuttu síðar kom í ljós að engin slys höfðu orðið á fólki og varð viðbragð þá afturkallað.„Við hvetjum alla sem hyggja á fjallaferðir á þessu svæði til að gæta vel að sér þar sem mikið hefur snjóað síðasta sólarhring og snjóalög eru því óstöðug,“ segir í tilkynningu lögreglu sem þakkar jafnframt fyrir snögg og fumlaus viðbrögð allra þeirra sem brugðust við þegar útkallið varð fyrr í dag.
Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta