Samskipti Íslands og Þýskalands, efnahagslegt öryggi og þróun innri markaðarins og alþjóða- og öryggismál voru meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi á fundum sínum með Gunther Krichbaum, Evrópumálaráðherra Þýskalands, og Anton Hofreiter, formanni Evrópumálanefndar þýska sambandsþingsins, í Berlín í gær.