Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir samhæfingu öryggis- og varnarmála á milli bandalagsþjóða Atlantshafsbandalagsins afar mikilvæga, sér í lagi í ljósi viðvarandi ógnar Rússlands í Úkraínu.Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force – JEF) í Helsinki í vikunni. Fundinn sóttu leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ásamt forsætisráðherrum Bretlands og Hollands. Forseti Úkraínu og forsætisráðherra Kanada fluttu ávörp.„Þetta eru þjóðir sem eru að samhæfa sínar öryggis- og varnaraðgerðir á svæðinu vegna þess að Eystrasaltið, Norður-Atlantshafið og norðurslóðir spila þarna svolítið stórt hlutverk saman,“ segir Kristrún.„Allir eru meðvitaðir um að sú ógn sem núna er verið að verjast austanmegin í gegnum Úkraínu er Rússl