Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hafa sett heimshagkerfið á annan endann. Lokun Hormússunds, eyðilegging orkuinnviða og óljós markmið um raunverulegt markmið árásanna hafa sent verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og áhrifanna gætir um allan heim. En stríðið í Mið-Austurlöndum hefur beint athyglinni frá öðru vandamáli sem var þegar farið að plaga fjárfesta á Wall Street áður en árásirnar hófust - fyrirtækjalán utan bankakerfis, eða einfaldlega einkalán.Fjallað var um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum í Heimskviðum helgarinnar.Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. En þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti valdi