Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ökumenn hvattir til að vera ekki á ferðinni

Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu hafa verið settir á óvissustig vegna hvassviðris, storms og snjókomu síðar í dag og í kvöld. Óvissustig tekur gildi ýmist klukkan 16 eða 17. Þetta á við um Reykjanesbraut, Hellisheiði, Mosfellsheiði og Vesturlandsveg um Kjalarnes.Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex síðdegis og gildir hún til klukkan tíu. Á sama tíma taka gular viðvaranir einnig gildi í flestum öðrum landshlutum, að Norðausturlandi og Austfjörðum undanskildum.Samkvæmt tilkynningu aðgerðarstjórnar höfuðborgarsvæðisins er viðbúið að færð spillist á meðan veðrið gengur yfir. Færð getur sömuleiðis spillst innan höfuðborgarsvæðisins, ekki síst í efri byggðum.Fólki sem þarf að vera á ferðinni er góðfúslega bent á að gera slíkt áður en veðrið skellur á eða eftir að því slot
Ökumenn hvattir til að vera ekki á ferðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta